TruPulse 360
Laser fjarlægðarmælir með hallamæli og áttavita
Léttur og þægilegur laser þar sem horft er beint í gegnum kíkinn og á innbygðan skjá. Þetta minnkar líkur á skekkju í mælingu heldu en ef aflestrar skjár væri til hliðar við optikina í kíkinum og eykur líkur á því um leið að laser geislinn fari beint á það sem miðað er á og endurkastið fari beint til baka í kíkinn til að auka nákvæmni í mælingu.
Með því að nota kristalhreina optic og aflestur í miðju þarf ekki að líta af því sem mælt er til að lesa af mælitækinu.
Með því að nota innbyggðan hallamæli er hægt er að mæla fjarlægð í plani og halla og reiknar tækið út hæðarmun.
Hægt er að tengja tækið við tölvu eða GPS gagnasöfnunartæki með kapli. Einnig er hægt að stilla tækið þannig að það læsi mælingu á hlut sem er næst eða lengst frá einnig er hægt að stilla á símælingu og mælir tækið þá stanslaust og sýnir strax mismunandi fjarlægðir ef kíkirin er hreyfður á milli hluta sem mældir eru.
Þessi tegund fjarlægðarmælis er með innbyggðum áttavita.
Tæknilýsing:
- Stærð: 12cm x 5cm x 9cm
- Þyngd: 220g
- Mælieiningar: feet, yardar, metrar, gráður og halli í prósentu
Hægt er að mæla:
- Fjarlægð: lóðrétt, lárétt og í halla
- Halli: gráður og prósent
- Hæð: þriggja punkta mæling
- Stefna: kompás stefna fyrir stakar mælingar
- Missing line: fjarlægð, halli og stefna milli tveggja mælipunkta
Mælisvið.
- Fjarlægð: 0-1000m venjulega, en hámark 2000m ef notaður er flötur með endurkasti eða spegill
- Halli: +-/ 90
- Stefna: 0-359,9 gráður
Nákvæmni:
- Fjarlægð: +-/ 30cm venjulega, +/- 1m er mæliflötur er dökkur
- Halli: +/- 0,25 gráður
- Stefna: +-/ 1 gráða

