Golf fjarlægðarmælar
legend-1200-arc

Bushnell Legend 1200ARC

Fjarlægðarmælir fyrir veiði

Léttur og þægilegur laser þar sem horft er beint í gegnum kíkinn og á innbyggðan skjá. Þetta minnkar líkur á skekkju í mælingu heldur en ef aflestrar skjár væri til hliðar við optikina í kíkinum. Einnig eykur þetta líkur á því að laser geislinn fari beint á það sem miðað er á og endurkastið fari beint til baka í kíkinn til að auka nákvæmni í mælingu.

Með því að nota kristalhreina optic og aflestur í miðju þarf ekki að líta af því sem mælt er til að lesa af mælitækinu.

Hægt að stilla tækið þannig að það læsi mælingu á hlut sem er næst eða lengst frá einnig er hægt að stilla á símælingu og mælir tækið þá stanslaust og sýnir strax mismunandi fjarlægðir ef kíkirinn er hreyfður á milli hluta sem mældir eru.

Reiknar út fall byssukúlu miðað við fjarlægð og caliber sem er notuð.

Tæknilýsing:

  • Stærð: 43 x 109 x 74 mm
  • Þyngd: 210 g
  • 3 Volta CR2 rafhlaða
  • Laser öryggisstaðall: FDA Class 1 (CFR 21)
  • Umhverfisþol: Vatns og rykþolin
  • Optík: 6X Stækkun (Sjónsvið: 103m @ 914 m)
  • Aflestur: Innbyggður LCD skjár
  • Mælieiningar: Yardar, Metrar
  • Festing fyrir þrífót (¼" - 20)

Mælisvið:

  • Fjarlægð: 5 til 1100 m venjulega
  • Nákvæmni: +/- 0,9 m
  • Stillingar: Automatic Scan 

*Tæknilýsing gæti breyst fyrirvaralaust





Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica