Ýmislegt
Mælihjól
Mælihjólið er með 0,1m nákvæmni. Það er bremsa í handfanginu sem eykur nákvæmni við mælingu. Á handfanginu er einnig hnappur til að endursetja hjólið auðveldlega. Auðvelt er að sjá á mælinn ofan á hjólinu.
Mælihjólið er létt (2,4kg) og meðfærilegt. Með einu handtaki er hægt að leggja hjólið saman. Á því er fótur sem settur er niður þegar leggja þarf hjólið frá sér án þess að setja það á jörðina. Mælihjólið er hægt að fá með eða án tösku.
