PathfindIR
PathfindIR er hitamyndavél sem dregur verulega úr hættum við akstur að næturlagi. Hún gerir ökumönnum kleift að sjá mun lengra og skýrar en með hefðbundnum ljósabúnaði bifreiða.
Ökumenn geta séð og fylgst með gangandi vegfarendum, dýrum eða hlutum á eða við veginn, sem veitir meiri tíma til að koma í vega fyrir hugsanleg slys.
PathfindIR hjálpar til við að greina hugsanlega hættu í niðamyrkri, reyk, rigningu og snjó.
Vélin er með 19mm linsu sem veitir notendum einstaklega gott sjónarhorn.
Vélin er sterklega byggð og er kjarni hennar einstaklega vel varinn gegn raka og vatni. Hægt er að nota vélina frá -40°C að +80°C og er hún með innbyggðum hitara sem afþýðir glugga hennar. Hitarinn getur brætt allt að 2mm þykkt lag af ís á innan við 15 mínútum þegar hitastig úti er -30°C og vindhraði mælist 100km/klst. Hitarinn fer sjálfkrafa í gang þegar hitastigið er minna en +4°C og slekkur á sér þegar hitastigið fer yfir +6°C. Þetta tryggir skýra linsu og myndir.
Vélin vegur einungis 360gr þannig að auðvelt er að tengja hana við framstuðara bifreiða.
FLIR hefur einnig hannað heildarpakka sem inniheldur allan nauðsynlegan búnað sem þarf til þess að tengja vélina.

