Hraðavaraskilti
Þessi skilti eru frá Olsen Engineering. Þau eru annaðhvort með innbyggðum radar eða skynjurum sem er komið fyrir ofan í akbrautinni.
Skilti með skynjurum nýtast betur ef um margar akreinar er að ræða. Þeir eru mjög nákvæmir, jafnvel í mikilli umferð. Skynjararnir eru settir í götuna 70 metra frá skiltinu.
Radar skiltin eru auðveldari í uppsetningu og auðveldara er að færa þau á milli staða en skilti með skynjurum. Radar skiltin eru ekki eins fullkomin og geta mælt sama bílinn tvisvar ef umferð er mjög mikil og um margar akreinar er að ræða.
Hægt er að fá aukalega í öll skilti svokallaðan „Count on me“ hugbúnað til að skrá upplýsingar um umferð. Hraðavaraskiltin eru tengd við 220V og hægt er að tengjast þeim með GSM síma eða fartölvu til þess að forrita þau og/eða sækja upplýsingar frá þeim.
Hraðavaraskilti er að finna víða á höfuðborgarsvæðinu. Rannsóknir gefa til kynna að þegar hraðavaraskilti hefur verið sett upp lækki meðalhraði um 4-8 km/klst og meðalhraði þeirra ökutækja sem koma úr gagnstæðri átt um 3-5 km/klst.
Hraðavara skilti
- Birtir ekin hraða og blikkar ef ekið er yfir mörkum
- Val um loop eða radar
- Stillanlegur hámarkshraði á skilti
- Innbyggður umferðagreinir
- Val um GSM eða serial samskipti

