Mælihjól
Nedo Lightweight Professional
Þetta mælihjól er með 0,1m nákvæmni. Bremsa er í handfangi þess sem eykur nákvæmni við mælingu. Á handfanginu er einnig hnappur til þess að endurstilla hjólið auðveldlega. Auðvelt er að sjá á mælinn ofan á hjólinu. Mælihjólið vegur 2,4 kg og er mjög meðfærilegt. Með einu handtaki er hægt að leggja hjólið saman og á því er fótur sem settur er niður þegar leggja þarf hjólið frá sér án þess að setja það á jörðina. Hjólið kemur með tösku.

