GPS ROVER með SCS900 hugbúnaði sem hannaður er fyrir eftirlit
SPS881 Rover með SCS900 hugbúnaði er hannaður t.d. fyrir verkstjóra til að fara út að mæla og getur hann einnig magntekið á staðnum. Hugbúnaðurinn er mjög einfaldur í notkun, þannig að ekki þarf lærðan mælingarmann til að fara út að mæla. Hugbúnaður þessi býður uppá útsetningar, veglínur o.m.fl. sem einungis fullkomnustu hugbúnaðarpakkar bjóða upp á.
Lesa meira
SPS881 er GPS lausn sem er sambyggt loftnet og móttakari. Þetta 72 rása tæki vinnur samhliða á bæði GPS og GLONASS, sem hentar vel hér á landi því að GLONASS tunglin fara norðar og fjölgar það mótteknum tunglum, eykur nákvæmni og fækkar þeim tímum sem tunglastaða er óhagstæð.
Lesa meira