Góð þáttaka á námskeiðum
Fréttatilkynning
Að undanförnu hefur Ísmar haldið fjölda námskeiða fyrir mælingarmenn og aðra sem koma að mælingum eða uppsetningu verkefna. Hafa þessi námskeið mælst vel fyrir og allflestir lært eitthvað sem skilar þeim markvissari vinnubrögðum og styttra vinnuferli.
Námskeið hafa verið haldin í Reykjavík, Akureyri og Egilsstöðum.
Hugbúnaðurinn sem farið hefur verið yfir er Survey Controller, Trimble Geomatics Office og SiteVision Office. Markmiðið með námskeiðunum er að notandinn verði kunnugur öllum aðgerðum og geti nýtt sér hugbúnað og tæki sem best við sína vinnu.
Ráðgert er að halda áfram með þessi námskeið og verða þau auglýst hér á heimasíðu Ísmar. Einnig er hægt senda inn beiðni um að við látum viðkomandi vita hvenær næsta námskeið verður.
Ísmar hefur einnig boðið upp á námskeið á Trimble vélstýringar fyrir stjórnendur vinnuvéla. Það eru dagsnámskeið þar sem notendur fá þjálfun og kennslu í notkun búnaðarins.
Í undirbúningi er námskeið á TerraSync og Pathfinder Office og verða þau auglýst fljótlega.
