Námskeið Trimble 3D vélstýringar
Námskeið Trimble 3D vélstýringar Ísmar bíður upp á dags námskeið í GCS900 vélstýringum, námskeiðið er hugsað fyrir stjórnendur vinnuvéla og þá sem koma að vinnu með Trimble vélstýringum. Markmiðið með námskeiðinu er að gera notandann hæfari að nota búnaðinn og þekkja notkunarmöguleika hans. Eins að notandinn verði sjálfstæðari og geti búið til einföld verkefni eins og lítil plön, graftarlínur milli punkta og halla. Á námskeiðinu er farið yfir allar aðgerðir og stillingar í GCS900, unnið með gögn fyrir allar helstu vinnuvélar eins og hefla, gröfur og jarðýtur. Eins verða sett upp einföld verkefni eins og lárétt plan og línur til að vinna útfá. Nemendur fá verkefni í lokin sem þeir vinna á hermum.
Allar nánari upplýsingar í síma 510-5100
