Fréttir
Gísli og Snorri

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur tekið til notkunar Trimble EZ Guide 250 GPS fyrir landbúnaðartæki.

Ljóst er að þessi búnaður getur skilað sér í skilvirkari áburðardreifingu og er ekki vanþörf á

Gísli Svanur Gíslason sölustjóri Ísmar afhendir Snorra Sigurðssyni framkvæmdastjóra búrekstrasviðs Landbúnaðarháskólans, Trimble GPS tæki fyrir landbúnað.

Tækjabúnaðurinn byggir á GPS tækninni og sýnir á einfaldan og þægilegan hátt hvar er búið að bera á túnið og hvar á eftir að fara yfir. Tryggir búnaðurinn að ekki sé tvíborið á sama blettinn og ennfremur að ekkert sé skilið útundan. Ljóst er að þessi búnaður getur skilað sér í skilvirkari áburðardreifingu og er ekki vanþörf á, þar sem áburðarverð hefur hækkað mikið undanfarið. Eru áburðarkaup orðinn mjög stór liður í rekstri bænda og nauðsynlegt að gæta ýtrustu hagkvæmni. Því Punkturhefur þessi búnaður þegar vakið mikla athygli og ekki síst þar sem verðið er mjög hagkvæmt.

Þá nýtist þessi tækni við margskonar aðra vinnu sem framkvæmd er með dráttarvélum, svo sem við heyskap og getur jafnvel sparað olíukostnað umtalsvert. Mjög auðvelt er að flytja tækjabúnaðinn á milli véla.





Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica