Fréttir
Ístak Mælingabátur
Mynd 1 af 3
1 2 3

Ístak Mælingabátur

Undanfarnar vikur hefur Ísmar staðið í ströngu við að útbúa mælingabát Ístaks með einum fullkomnasta búnaði sem völ er á.

Settur hefur verið í bátinn Multibeam dýptarmælir frá Odom í Bandaríkjunum, ásamt Qinsy hugbúnaði frá hollenska fyrirtækinu QPS. Er þetta bylting í dýptarmælingum eða öllu heldur í kortlagningu sjávarbotnsins, þar sem t.d. er unnið að dýpkunarframkvæmdum eða hafnargerð.

Tengt þessum búnaði er svokallaður “Heading bundle” frá Trimble sem settur var upp á sama tíma og gefur nákvæma staðsetningu auk stöðu bátsins.

Þá höfum við hjá Ísmar útbúið dýpkunarpramma Ístaks með fullkomnasta búnaði til dýpkunarframkvæmda frá Prolec. Er það pcX þrívíddarkerfi sem byggir á staðsetningu frá Trimble GPS tækjum að nýjustu gerð, með sérstaklega styrktum loftnetum.

Ofangreindur búnaður hefur nú allur verið fluttur til Noregs, þar sem Ístak vinnur stórt verk norður í Lofoten og miklar vonir eru bundnar við þessa tækni sem mun örugglega flýta fyrir verkum og gera alla vinnu skilvirkari.Reykjavik

Mæling_Reykjavik



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica