Umboð fyrir Streamlight.
Ísmar hefur tekið að sér umboð fyrir Streamlight, sem er ráðandi framleiðandi á sviði vasaljósa og leitarljósa fyrir atvinnumenn. Streamlight er einkum þekkt innan löggæslu og slökkviliða um allan heim og er leiðandi á þeim mörkuðum. Gæði þessara ljósa eru ótvíræð og mikið í framleiðsluna lagt. Ljósin eru fáanleg, hvort heldur er með endurhlaðanlegum rafhlöðum og hleðslutækjum eða fyrir einnota rafhlöður.
Þá framleiðir Streamlight ljós sem henta vel fyrir Björgunarsveitir, veiðimenn, sjómenn, bændur og aðra sem stunda útiveru og þurfa á öruggum ljósum að halda.

