TRIMBLE EXPRESS 2010
Ísmar og Trimble héldu morgunverðarfund fimmtudaginn 15 apríl s.l.
TRIMBLE EXPRESS á Íslandi 2010.
Ísmar og Trimble héldu morgunverðarfund fimmtudaginn 15 apríl s.l. Fundur þessi ber nafnið Trimble Express og hefur verið árlegur viðburður nú um nokkurra ára skeið. Er þetta sameiginlegt átak Ísmar og Trimble og er tilgangurinn að hóa saman viðskiptavinum og öðrum sem áhuga hafa á að fylgjast með hinni öru þróun landmælingatækninnar. Á fundinum voru kynntar nýjungar frá landmælingadeild Trimble og nýstárlegar lausnir fyrirtækisins fyrir mælingamenn og hönnuði og samskiptaleiðir milli þeirra. Frá Trimble kom Anthony Mills og var með góða kynningu á nýjungunum auk þess sem sérfræðingar Ísmar sýndu tæknina í notkun.
Fundurinn var vel sóttur og mættu tæplega 50 manns til þess að hlíða á fagnaðarerindið. Fyrir fund eða kl. 8 um morguninn var boðið uppá morgunverð og síðan í lok fundar var fundargestum boðið til hádegisverðar. Var ekki annað að heyra á gestunum en að þeir væru ánægðir með þetta fyrirkomulag og virtust þeir kunna vel að meta þær upplýsingar sem þeir fengu og þótti Trimble vera að koma fram með athyglisverðar nýjungar.