Hitamyndavél sett í Ægi
Notuð við landamæravörslu
Áður en varðskipið Ægir fór til starfa við landamæravörslu niður við Senegal, var sett fullkomin hitamyndavél í skipið. Var þetta vél frá FLIR og sá Ísmar sem er umboðsaðili FLIR fyrir Ísland og Færeyjar um uppsetningu vélarinnar.
Hitamyndavél þessi er af Voyager gerð og er í raun sambyggð hitamyndavél og videovél sem sér vel í dagsbirtu og rökkri. Hitamyndavélin sér hins vegar jafn vel, hvort heldur er í birtu eða myrkri. Þessi búnaður getur greint mann í sjó úr rúmlega 2 km. fjarlægð og stærri hluti eins og skip í allt að 6 km. fjarlægð í niðamyrkri. Þá er hægt að þysja að viðkomandi hlut til að sjá hann betur.
Með fjarstýringu úr brúnni er hægt að snúa vélinni og halla til að beina henni að viðkomandi hlut eða þegar verið er að leita.
Reikna má með að þessi búnaður nýtist vel við þau verkefni sem áhöfn Ægis þarf að sinna á þessum nýja vettvangi.
Að sögn Gylfa Geirssonar hjá Landhelgisgæslunni mun þetta tæki ekki einungis nýtast í verkefnum skipsins við vestur Afríku og í Miðjarðarhafi, heldur einnig og ekki síður við eftilits og björgunarstörf við Íslandsstrendur.

