Fréttir
Björgunarfélag Ísafjarðar fær hitamyndavél frá Ísmar
FLIR hitamyndavél frá Ísmar
Sveinbjörn Sveinbjörnsson sölumaður frá Ísmar afhendir Björgunarfélagi Ísafjarðar FLIR hitamyndavél. Við hjá Ísmar óskum Björgunarfélaginu til hamingju með nýju hitamyndavélina. FLIR hitamyndavélin mun nýtast bæði á sjó og landi til leitar, og gildir þá einu hvort leitað er í dagsbirtu eða myrkri því vélin greinir hitamun og er því ekki háð neinni birtu.
