Margt á döfinni hjá Ísmar
Í sumar hefur verið mikið að gera hjá Ísmar við uppsetningu tækja í vinnuvélar. Fjöldi þrívíddar GPS búnaðar sem við höfum sett í gröfur, jarðýtur og veghefla er nú farinn að skipta nokkrum tugum. Sem dæmi má nefna að hjá Héraðsverki er slíkur búnaður af Trimble gerð, kominn í 14-15 vélar.
Nýverið settum við í gröfur, jarðýtu og veghefil fyrir Arnarfell, nýlokið er ísetningu í 4 gröfur hjá Ístaki, slíkur búnaður hefur verið settur í nokkrar vélar hjá Klæðningu og Ræktó auk margra minni verktaka og svo mætti lengi telja. Ljóst er að þrívíddartæknin er búin að sanna sig og eru sum fyrirtæki algjörlega farin að stóla á hana, ekki síst við vegagerð, eins og Héraðsverk hefur gert með góðum árangri. Ístak notar þrívíddartæknina t.d. við lagnaskurði og vegagerð í stóru hverfi í Leirvogstungu og er þessi tækni því notuð við margvísleg verkefni.
Auk þessa hefur mikil gróska verið í sölu dýptarmæla frá Prolec og Ocala sem margar gröfur eru nú komnar með við ýmis verk.
Þá hafa verkfræðistofur og mælingamenn talsvert verið að bæta við sig tækjabúnaði af Trimble, enda margra ára góð reynsla á búnaði frá Trimble hérlendis. Þeir hjá Trimble hafa verið duglegir að koma með nýjungar undanfarið og hvetjum við alla til að skoða heimasíðu þeirra og kynna sér nýjungarnar. Sem dæmi má nefna, hina nýju VX Þrívíddarstöð og SPS930 stöðina sem stýrir vinnuvélum auk mælinga og margt fleira.
